Opinn jólaskógur í Smalaholti 2011
Ágætu félagar í Skógræktarfélagi Garðabæjar.
Laugardaginn 17. desember n.k. verður „opinn jólaskógur“ í Smalaholti milli kl. 13:00 og 16:00. Skógræktarfélag Garðabæjar og Lionsklúbburinn Eik vinna saman að því að opna skóginn fyrir fjölskyldur bæjarins til að velja sér jólatré. Aðallega er um að ræða stafafuru og stöku greni og eingöngu má saga þau tré sem merkt hafa verið sérstaklega með plastborðum. Eitt verð, kr. 5000, er á öllum trjám og þeim er pakkað í net eftir óskum. Ef sög er til á heimilinu er ágætt að hafa hana með.
Ráðlegt er að mæta vel klæddur en auk þess verður boðið upp á heitt kakó, kaffi og piparkökur í skóginum.
Athugið að eitt verð, kr. 5000, er á öllum trjám og aðeins er um staðgreiðslu að ræða.
Aðkoma að skógræktarsvæðinu í Smalaholti er við bílastæðið af Elliðavatnsvegi, norðan við Vífilsstaðavatn. Flaggað verður á staðnum.
Gerum okkur glaðan dag í skóginum í Smalaholti.
Með jólakveðju,
Stjórn Skógræktarfélags Garðabæjar og Lionsklúbburinn Eik
Blogg netkvenna
Wednesday, December 7, 2011
Monday, February 7, 2011
Dagskrá Netsins á vormánuðum
Netfundur 24. feb,
Netfundur 17. mars,
Netfundur 7 apríl
Vorferð 7. maí
Netfundur 17. mars,
Netfundur 7 apríl
Vorferð 7. maí
Monday, November 8, 2010
Saturday, November 6, 2010
Velkomnar Netkonur
Jæja þá erum við búnar að opna bloggsíðu sem er ætluð til að birta dagskrá og annað efni sem Netkonum gæti þótt gott að fletta upp. Einnig mætti hugsa sér að konur skiptust á skoðunum hér inni
Subscribe to:
Posts (Atom)